Sagan
okkar
Múrmann ehf. var stofnað árið 2022 af Frímanni Gústaf Frímannssyni. Fyrirtækið byrjaði sem eins manns rekstur en hefur vaxið hratt og í dag starfa sex manns hjá fyrirtækinu. Frímann lauk meistaragráðu í múraraiðn árið 2025 og hefur byggt upp sterkt orðspor fyrir vönduð vinnubrögð og áreiðanlega þjónustu. Áhugi Frímanns á faginu hófst árið 2014 þegar hann byrjaði að vinna við múrverk. Árið 2015 hóf hann nám í iðninni og útskrifaðist sem sveinn árið 2017. Í skólanum gekk hann undir viðurnefninu „Múrmann“ og það varð síðar innblásturinn að nafni fyrirtækisins. Múrmann fékk svo meistaragráðuna sína 2025 og er í dag "Múrarameistari,,.
Múrmann ehf. tekur að sér fjölbreytt verkefni á sviði múrverks, steypuvinnu og vélslípunar á bílaplönum. Fyrirtækið leggur sérstaka áherslu á fasteignaviðhald og hefur það að markmiði að skila faglegri og endingargóðri vinnu í hverju verkefni. Hjá Múrmann ehf. eru gæði, heiðarleiki og góð þjónusta alltaf í fyrirrúmi. Múrmann hefur einn góðann kost framm yfir alla aðra iðnaðarmenn, hann svarar alltaf símanum
